Óskilamunir

12.5.2015

Kæru forráðamenn 

Hér í skólanum hefur safnast upp mikið af óskilafatnaði. Við höfum sett óskilamuni yngri deildar fram á borð í miðrými skólans fyrir framan tölvustofuna og óskilamunir fyrir miðdeild og unglingadeild eru í óskilamunageymslu við unglingadeildargang. 
Við ætlum að biðja ykkur forráðamenn að koma við í skólanum í þessari viku og athuga hvort ykkar barn eigi eitthvað af þessum fatnaði. Í lok skóladags föstudaginn 15.maí munum við fjarlægja allan óskilafatnað og gefa til Rauða Krossins. 

Kær kveðja  
Starfsfólk Áslandsskóla


Áslandsskóli | Kríuási 1, 221 Hafnarfjörður
Sími: 585 - 4600 | Netfang: aslandsskoli@aslandsskoli.is