Skólastarf þriðjudaginn 5.1.2021

Nýjar upplýsingar á morgun

4.1.2021

Kennsla hefst á nýju ári á morgun, þriðjudaginn 5.janúar.
Hér að neðan má sjá tímasetningar þær sem gilda fyrir nemendur Áslandsskóla á morgun.
Þetta skipulag var ákveðið fyrir jólaleyfi en mun taka breytingum á miðvikudag vegna nýrra sóttvarnarreglna fyrir skólastarf.
Forráðamenn fá annað bréf frá mér á morgun.

Tímasetningar sem mikilvægt er að hafa í huga er varða yngsta stig þann 5.1.2021:
Kl. 8.00 Skólinn opnar – inngangur í yngri deild, nemendur fara ekki í raðir heldur ganga beint inn í sína heimastofu.
Kl. 8.10 Kennsla hefst í 1.-4, bekk
Kl. 13.10 Kennslu lýkur í 1.-4. bekk, nemendur halda heim á leið eða í frístundaheimili
(Óbreytt skólastarf frá því fyrir jól).

Tímasetningar sem mikilvægt er að hafa í huga er varða miðstig, 5.-7. bekk þann 5.1.2021:
Kl. 8.20 Skólinn opnar – inngangur í miðrými, nemendur fara ekki í raðir heldur ganga beint inn í sína heimastofu, eða stofu sem bekknum hefur verið úthlutað.
Kl. 8.30 Kennsla hefst í 5.-7. bekk.
Kl. 12.50 Kennslu lýkur í 5.-7. bekk, nemendur matast í stofu og halda síðan heim á leið.
(Nemendur eru því einni kennslustund lengur í skóla á morgun).

Tímasetningar sem mikilvægt er að hafa í huga er varða unglingastig, 8.-10. bekk þann 5.1.2021:
Kl. 8.00 Skólinn opnar – inngangur í unglingadeild, nemendur fara ekki í raðir heldur ganga beint inn í sína heimastofu, eða stofu sem bekknum hefur verið úthlutað.
Kl. 8.10 Kennsla hefst í 8.-10. bekk.
Kl. 11.50 Kennslu lýkur í 8.-10. bekk, nemendur matast í stofu og halda síðan heim á leið.
(Nemendur mæta því fyrr í skólann en fyrir jól).


Áslandsskóli | Kríuási 1, 221 Hafnarfjörður
Sími: 585 - 4600 | Netfang: aslandsskoli@aslandsskoli.is