Dagskrá framundan
Vinavika / Fjölgreindaleikar
Á fjölgreindaleikum glíma nemendur við margs konar verkefni og ólík þar sem hefðbunin stundaskrá er sett til hliðar á meðan.
Nemendum er blandað í hópa þvert á bekki/árganga þar sem elstu nemendurnir fá ábyrgð á sínum hópi. Hvert verkefni tekur stuttan tíma svo nemendur taka þátt í fjölda verkefna yfir skóladaginn.
Með kennsludegi eins og fjölgreindaleikum fæst margt. Nemendur fá tilbreytingu í skólastarfinu og sinna öðru vísi verkefnum en flesta skóladaga, þeir kynnast öðrum nemendum, læra að vinna saman á nýjan hátt og fá að sýna nýja hliðar á sjálfum sér.