Farsæld barna

Lög um samþættingu þjónustu í þágu farsældar barna tóku gildi þann 1. janúar 2022. Meginmarkmið laganna er að skapa umgjörð sem stuðlar að því að börn og foreldrar, sem á þurfa að halda, hafi aðgang að samþættri þjónustu við hæfi án hindrana. 

Lög um samþættingu þjónustu í þágu farsældar barna tóku gildi þann 1. janúar 2022. Meginmarkmið laganna er að skapa umgjörð sem stuðlar að því að börn og foreldrar, sem á þurfa að halda, hafi aðgang að samþættri þjónustu við hæfi án hindrana. 

Í lögunum kemur fram að börn undir 18 ára aldri og fjölskyldur þeirra skuli hafa aðgang að tengilið þjónustu í þágu farsældar barns eftir því sem þörf krefur. Hlutverk tengiliðar er: 

  • • að hafa hagsmuni barns að leiðarljósi
  • • að rækja hlutverk sitt í samstarfi og samráði við foreldra og barn
  • • að veita upplýsingar um þjónustu í þágu farsældar barns
  • • að aðstoða við að tryggja aðgang að frummati á þörfum barns – eyðublað frá BOFS
  • • að skipuleggja og fylgja eftir samþættingu fyrsta stigs þjónustu í þágu farsældar barns
  • • að koma upplýsingum til sveitarfélags um þörf fyrir tilnefningu málstjóra
  • • að taka þátt í starfi stuðningsteymis eftir því sem við á

Þegar barn er  við nám í leik-, grunn-, eða framhaldsskóla er tengiliður þjónustu í þágu farsældar barns starfsmaður skólans þar sem barnið er við nám eða leik.

Úrræðalisti Áslandsskóla er hér


Tengiliður/ir farsældar í Áslandsskóla eru:

Jóhanna Björg Másdóttir, deildarstjóri stoðþjónustu

Hjördís Jónsdóttir, deildarstjóri 1.-4.bekk

Sigrún Guðmundsdóttir, deildarstjóri 5.-7.bekk

Kristín Jóna Magnúsdóttir, deildarstjóri 8.-10.bekk

Áður en tengiliður byrjar að veita þjónustu skal liggja fyrir beiðni foreldra og/eða barns um samþættingu þjónustu. Hér fyrir neðan er tengill á þessi eyðublöð.

· Beiðni um samþætta þjónustu Hér

· Beiðni um miðlun upplýsingar Hér


Hér eru nokkrir gagnlegir tenglar:

· Kynningarmyndband: Samþætting þjónustu í þágu farsældar barna

https://www.bofs.is/tolfraedi-og-utgefid-efni/frettir/frettasafn/samthaetting-i-thagu-farsaeldar-barna-kynning

· Leiðbeiningar um innleiðingu á lögum um samþættingu þjónustu í þágu farsældar barna (Barna- og fjölskyldustofa)

https://www.bofs.is/farsaeld/leidbeiningar-um-innleidingu-til-sveitarfelaga/

· Samþætting þjónustu í þágu farsældar barna (Barna- og fjölskyldustofa)

https://www.bofs.is/media/almenningur/Glaerur-a-heimasidu-2023.pdf

· Reglugerð um tengiliði og málstjóra samþættingar þjónustu í þágu farsældar barna

https://www.stjornartidindi.is/Advert.aspx?RecordID=864aa86c-d80d-4865-b09b-a5875ddeeb85


Áslandsskóli | Kríuási 1, 221 Hafnarfjörður
Sími: 585 - 4600 | Netfang: aslandsskoli@aslandsskoli.is