Áslandsskóli hnetulaus

Nokkur börn í Áslandsskóla eru greind með bráðaofnæmi fyrir hnetum.

8.11.2018

Í flestum skólum er einhver með bráðaofnæmi, ýmist börn eða starfsfólk.

Bráðaofnæmi eru skjót og lífshættuleg ofnæmisviðbrögð þar sem ofnæmisvaldurinn er oftast fæða, lyf eða skordýrabit.

Nokkur börn í Áslandsskóla eru greind með bráðaofnæmi fyrir hnetum.

Einstaklingur með bráðaofnæmi fyrir hnetum þarf ekki að borða hnetur til að fá ofnæmisviðbrögð. Nóg er að hann komist í snertingu við matvæli sem innihalda hnetur. Einnig getur snerting við einstakling sem hefur verið að meðhöndla hnetur valdið svæsnum ofnæmisviðbrögðum.

Af þessum ástæðum hefur sú stefna verið tekin að Áslandsskóli verði hnetulaus skóli. Í því fellst að matur innan skólans innihaldi ekki hnetur að neinni gerð, hvorki jarðhnetur eða trjáhnetur (pekanhnetur, kasjúhnetur, möndlur o.fl.).

Við mælumst því til þess, kæru foreldrar, að skólanesti barnanna ykkar innihaldi ekki hnetur.

Hafa skal í huga að hnetur leynast í mörgu svo sem hnetusmjöri, hnetujógúrt, ýmsu bakarísbrauði, satay-sósu o.s.frv.

Fyrirspurnum og ábendingum má beina til skólahjúkrunarfræðings.


Áslandsskóli | Kríuási 1, 221 Hafnarfjörður
Sími: 585 - 4600 | Netfang: aslandsskoli@aslandsskoli.is