• Nemendur frá leikskólunum Stekkjarási og Tjarnarás

Nemendur frá Stekkjarási og Tjarnarási

24.4.2015

Nemendur frá leikskólunum Stekkjarási og Tjarnarási hafa verið að koma í heimsólk í Áslandsskóla síðustu föstudaga til þess að kynnast skólastarfinu. Þetta eru verðandi nemendur 1. bekkja skólaárið 2015-2016. Krakkarnir heimsóttu núverandi 1. bekki og eyddu með þeim skóladeginum fram yfir hádegi. Dagurinn var spennandi og fóru nemendurnir í leikfimi á Ásvelli ásamt því að borða hádegismat og fara í frímínútur. Allir nutu samverunnar og hlökkum við mikið til að fá þessa skemmtilegu krakka til starfa næsta haust.


Áslandsskóli | Kríuási 1, 221 Hafnarfjörður
Sími: 585 - 4600 | Netfang: aslandsskoli@aslandsskoli.is