ÁSLANDSSKÓLI er fyrsti sjálfstæði SMT skóli landsins

5.6.2011

Fulltrúar PMT foreldrafærni, Margrét Sigmarsdóttir og Edda Vikar Guðmundsdóttir, heimsóttu Áslandsskóla í dag og komu þær færandi hendi.

{nl}

Skólanum var færður að gjöf SMT fáni til merkis og viðurkenningar um að Áslandsskóli er fyrsti sjálfstæði SMT skóli landsins, skólinn fékk slíkt sjálfstæði á síðsta ári.

{nl}

Þetta er okkur að sjálfsögðu mikill heiður og er til marks um markviss og vönduð vinnubrögð í aga- og uppeldismálum skólans.

{nl}

Víðistaðaskóli fékk slíka viðurkenningu nú á dögunum og er því annar í röðinni sjálfstæðra SMT skóla.


Áslandsskóli | Kríuási 1, 221 Hafnarfjörður
Sími: 585 - 4600 | Netfang: aslandsskoli@aslandsskoli.is