Styrkur til Mæðrstyrksnefndar

19.12.2010

Nemendur, forráðamenn og starfsfólk Áslandsskóla sleppa árlega "pakkajólum" í skólanum en styrkja þess í stað Mæðrastyrksnefnd Hafnarfjarðar skömmu fyrir jólahátíðina.

{nl}

Leifur S. Garðarsson skólastjóri afhenti fulltrúa Mæðrastyrksnefndar styrk frá skólasamfélaginu í Áslandi, skömmu fyrir jólaleyfi. 

{nl}

Styrkurinn í ár var krónur 182.849.- og er einstaklega ánægjulegt að sjá samhuginn í skólahverfinu okkar.

{nl}

Á átta árum hefur skólasamfélagið í Áslandsskóla því styrkt Mæðrastyrksnefnd Hafnarfjarðar um 1.351.002. - krónur.

{nl}

Meðal þeirra sem söfnuðu má nefna að Birgitta Rós, Kolbrún Sara, Svandís, Lísbet Stella, Andrea Helga, Viktoría Rós, Thelma Karen, Elísa og Silja Rós í Álfaheimum og Hulduheimum söfnuðu dósum og flöskum að andvirði 36.239. - krónur.

{nl}

 


Áslandsskóli | Kríuási 1, 221 Hafnarfjörður
Sími: 585 - 4600 | Netfang: aslandsskoli@aslandsskoli.is