Aðalfundur foreldrafélagsins
AÐALFUNDUR FORELDRAFÉLAGS ÁSLANDSSKÓLAverður haldinn þriðjudaginn 13. maí klukkan 20:00
á sal skólans. Léttar veitingar í boði.
Erindi – ,,Stranglega bannað” - Eyþór Eðvarðsson
Dagskrá:
• Ávarp skólastjóra
• Skýrsla foreldraráðs
• Skýrsla fráfarandi stjórnar
• Endurskoðaðir ársreikningar
• Kosning í stjórn foreldrafélags, foreldraráð og nefndir
• Önnur mál
• Erindi
Fundarstjóri: Egill Guðmundsson
Fundurinn er opinn foreldrum allra barna í Áslandsskóla, sem og foreldrum barna sem hefja nám við skólann á haustönn 2008. Þeir foreldrar sem ekki sjá sér fært að mæta á fundinn en vilja hafa áhrif á starfsemi fundarins eru beðnir að senda skriflegt umboð með staðgenglum.
Foreldrafélagið er vettvangur foreldra sem vilja vinna með kennurum og starfsfólki Áslandsskóla að því að gera skólann að vettvangi þar sem börnunum okkar líður vel og finnst gaman að vera. Mætum öll og tökum þátt.
- Eldri færsla
- Nýrri færsla