Áslandsskóli styrkir ABC hjálparstarf

25.5.2007

Áslandsskóli færði fulltrúum ABC árlegan styrk skólans til hjálparstarfs og uppbyggingar.

Í kaffihúsi nemenda í 10. bekk skólans á menningardögum söfnuðust meiri fjármunir en nokkru sinni áður. Hluti þeirrar upphæðar fór í útskriftarferð nemenda og hluti til ABC.
Alls nam styrkveiting frá kaffihúsinu 74.500 krónum.

Þá héldu nemendu í 1. bekki tómbólu á menningardögunum og þar söfnuðust tæplega 14 þúsund krónur.

Styrkur nemenda Áslandsskóla til ABC nemur því krónum 88.466 þetta árið.

Sannarlega glæsilegt framtak og kemur að góðum notum, líklega í uppbyggingarstarfi í Úganda og Kenýa.

Áslandsskóli | Kríuási 1, 221 Hafnarfjörður
Sími: 585 - 4600 | Netfang: aslandsskoli@aslandsskoli.is