Skólasetning Áslandsskóla 2020
Aðeins foreldrum nemenda í 1. bekk og foreldrum nýrra nemenda við skólann heimilt að mæta með börnum sínum á skólasetningu
SKÓLASETNING Í ÁSLANDSSKÓLA 2020
Skólasetning er í Áslandsskóla þriðjudaginn 25. ágúst næstkomandi.
Vegna ástandsins í samfélaginu verður þátttaka foreldra/forráðamanna á skólasetningu því miður takmörkuð þetta haustið. Því er aðeins foreldrum nemenda í 1. bekk og foreldrum nýrra nemenda við skólann heimilt að mæta með börnum sínum á skólasetningu. Aðrir geta því miður ekki mætt á skólasetningu þetta haustið.
Foreldrar/forráðamenn eru beðnir að virða þessar reglur.
Nemendur mæta til skólasetningar sem hér segir:
Klukkan 8:30
Nemendur í 8.-10. bekk
Klukkan 9:00
Nemendur í 5.-7. bekk
Klukkan 9:30
Nemendur í 3.-4. bekk
Klukkan 10:00
Nemendur í 2. bekk
Klukkan 10:30
Nemendur í Hnjúkaheimum 1. bekk HJ
Klukkan 11:00
Nemendur í Tindaheimum 1. bekk SP
Hér í skólanum ríkir mikil tilhlökkun að fá okkar öflugu nemendur til starfa á ný.