Vetrarfrí

21.2.2024

Það er vetrarfrí í grunnskólum Hafnarfjarðar fimmtudaginn 22. og föstudaginn 23. febrúar. Þessa daga er engin kennsla í Áslandsskóla og frístundaheimilið Tröllaheimar er lokað. Félagsmiðstöðin Ásinn er opin skv. dagskrá.

Mánudaginn 26. febrúar er skipulagsdagur. Nemendur eiga ekki að mæta í skólann þennan dag. Frístundaheimilið Tröllaheimar er opið fyrir þá nemendur sem eru skráðir. Félagsmiðstöðin Ásinn er opin skv. dagskrá.

Nemendur mæta aftur í skólann að loknu vetrarfríi þriðjudaginn 27. febrúar.

Foreldrar eru hvattir til að fylgjast með því sem er í boði í vetrarfríi á heimasíðu Hafnarfjarðarbæjar.


Áslandsskóli | Kríuási 1, 221 Hafnarfjörður
Sími: 585 - 4600 | Netfang: aslandsskoli@aslandsskoli.is