Áslandsskóli styrkir Mæðrastyrksnefnd

18.12.2020

Undanfarin fjórtán ár hefur skólasamfélagið í Áslandsskóla styrkt Mæðrastyrksnefnd Hafnarfjarðar með framlögum fyrir jólin. Ásta Eyjólfsdóttir formaður nefndarinnar kom í Áslandsskóla í dag föstudaginn 18. desember, og tók við framlagi úr hendi Leifs S. Garðarssonar skólastjóra.
Nemendur í 5. bekk skólans voru viðstaddir og fengu m.a. fræðslu um hvað verður um þá fjármuni sem safnast.

Í ár söfnuðust 370.000.- krónur.

Á fjórtán árum hefur skólasamfélagið í Áslandi því styrkt Mæðrastyrksnefnd um alls 3.499.532.- krónur.

Þessi hugsun okkar til þeirra sem minna mega sín tengist einni af fjórum hornstoðum skólans, þjónustu við samfélagið.

Gaman er að sjá að fleiri skólar í Hafnarfirði hafa fylgt fordæmi okkar og styrkja nú Mæðrastyrksnefnd í stað pakkaleikja.


Áslandsskóli | Kríuási 1, 221 Hafnarfjörður
Sími: 585 - 4600 | Netfang: aslandsskoli@aslandsskoli.is