Skreytingardagur og ratleikur

5.12.2023

Skólastarf var brotið upp fimmtudaginn 30. nóvember en þá skelltu nemendur og starfsfólk sér í föndur- og skreytingar gírinn. Stofur og hurðir voru skreyttar fyrir aðventuna og hugmyndaflugið fékk að sönnu að njóta sín.



Fimmtudaginn 1. desember var hinn árlegi ratleikur skólans sem undirbúinn var af íþróttakennurum. Hver deild fór ákveðna leið og leysti þrautir. Boðið var upp á heitt súkkulaði og einkenndi gleði daginn þetta árið en að honum loknum fengu nemendur pylsur og safa til að ná upp orkutapinu eftir hlaup morgunsins.











Áslandsskóli | Kríuási 1, 221 Hafnarfjörður
Sími: 585 - 4600 | Netfang: aslandsskoli@aslandsskoli.is