Áslandsskóli styrkir Mæðrastyrksnefnd Hafnarfjarðar

17.12.2021

 

Einn af jólasiðum Áslandsskóla er að sýna í verki þjónustu við samfélagið sem er ein af hornstoðum skólans. Við munum eins og undanfarin ár styrkja Mæðrastyrksnefnd Hafnarfjarðar sem aðstoðar þær fjölskyldur í Hafnarfirði sem þurfa á aðstoð að halda í desember.

Fulltrúi frá Mæðrastyrksnefnd Hafnarfjarðar kom í skólann á stofujól og tók við styrknum. Hér eru nemendur í 5. bekk með okkur við afhendingu og fulltrúi Mæðrastyrksnefndar Hafnarfjarðar sagði frá og fræddi þau um í hvað styrkurinn fer.

Gleðilega jólahátíð.



 

 


Áslandsskóli | Kríuási 1, 221 Hafnarfjörður
Sími: 585 - 4600 | Netfang: aslandsskoli@aslandsskoli.is